Fotbolti.net
17.03.22 - 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hlakkar til að einbeita sér að öðru eftir að ferlinum lauk

Hlakkar til að einbeita sér að öðru eftir að ferlinum lauk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var staðfest í síðustu viku að Guðjón Baldvinsson hafi ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla. Hann var til viðtals hjá Fótbolta.net á dögunum þar sem hann ræddi meðal annars lífið eftir fótboltann.

Hann er viðskiptastjóri hjá alþjóðlega fjármálafyrirtækinu Rapyd. Hann hlakkar mikið til að einbeita sér að vinnunni í framtíðinni.

„Það er mikið að gera þar, nokkrar utanlandsferðir framundan. Það er mikil tilhlökkun að einbeita sér að öðru og ná meiri árangri þar heldur en þegar allur fókusinn er á fótboltanum."

„Ef þú ert í fótbolta þá er hausinn þar allan daginn að hugsa um næsta leik og vera í besta forminu, samviskubit að fá sér eitthvað óhollt að borða þannig að þetta verður skrítið allt saman."

Hann tekur undir það að það sé líf eftir fótboltann.

„Já, það er eins og er tilhlökkun en ég get lofað þér því að þegar ég sé grasið verða grænt og sé auglýsingarnar fyrir Bestu deildina þá kemur einhver tilfinning yfir mig."

Sjá einnig:
Guðjón Baldvinsson leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Gaui Baldvins: Þurfti að selja mér það margoft að gefast upp
Er Guðjón Stjörnumaður eða KR-ingur? - „Hægt að eiga tvö heimili"

Gaui Baldvins: Þurfti að selja mér það margoft að gefast upp

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.