Fotbolti.net
17.03.22 - 16:00
Brynjar Ingi Erluson

Yngri bróðir Pablo Punyed í Ægi (Staðfest)

Renato Punyed í leik með ÍBV

Renato Punyed í leik með ÍBV

Canon

Mynd: Raggi Óla

Knattspyrnudeild Ægis hefur gengið frá samningnum við Renato Punyed og mun því spila með liðinu í 2. deildinni á komandi tímabili.
Renato er 26 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður og kemur frá El Salvador en hann er bróðir Pablo Punyed, leikmanns Víkings R. í Bestudeildinni.

Pablo hefur gert góða hluti á Íslandi frá því hann kom fyrir tíu árum síðan og tekist að vinna Íslandsmeistaratitilinn með þremur félögum.

Renato er yngri bróðir Pablo en hann þekkir vel til á Íslandi. Hann lék tvo leiki í deild- og bikar með ÍBV árið 2017 og spilaði þá fimm leiki á láni hjá ÍR í Inkasso-deildinni sama ár.

Hann hefur síðustu ár spilað í Noregi, Króatíu og Svíþjóð en er mættur aftur til landsins og mun spila með Ægi á komandi tímabili.

Ægir tryggði sig upp í 2. deildina á síðasta tímabili með því að lenda í öðru sæti 3. deildar en liðið hefur farið upp um tvær deildir á tveimur tímabilum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.