Liverpool er úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn Real Madrid en fyrri leikur liðanna á Anfield fór 5-2 fyrir Real.
Alisson var í viðtali eftir leikinn á Bernabeu sem Liverpool tapaði 1-0 en hann sagði að það hafi vantað upp á hugarfar leikmanna í leiknum.
„Það er ástæða fyrir öllu og í dag getum við sagt að það hafi verið hugarfar leikmanna á vellinum. Mögulega út af fyrri leiknum. Að vinna Real Madrid á útivelli, það er erfitt að koma hingað og gera þér vonir um að komast áfram," sagði Alisson.
„Ég er í Liverpool treyjunni og er að spila á móti Real Madrid á Santiago Bernabeu, að minnsta kosti verð ég að gera mitt besta. Ég hugsa þannig, ég trúi því að ég hafi gert mitt besta. Sem lið verðum við að gera miklu betur."
Athugasemdir