Bakvörðurinn Joao Cancelo má spila gegn Manchester City í Meistaradeildinni þrátt fyrir að vera í láni hjá Bayern.
Dregið var áðan í Meistaradeildina og þar drógust Bayern og City saman.
Dregið var áðan í Meistaradeildina og þar drógust Bayern og City saman.
Cancelo var lánaður frá City til Bayern í janúar síðastliðnum en oftast er það þannig að lánsmenn mega ekki spila gegn sínum félögum. Það er oftast sett inn í samningana.
Það er engin slík klásúla í samningi Cancelo að sögn vefmiðilsins Goal og má hann því spila gegn City.
Cancelo var einn mikilvægasti leikmaður City áður en honum og Pep Guardiola, stjóra liðsins, lenti saman. Það varð til þess að Guardiola var tilbúinn að leyfa honum að fara.
Athugasemdir