Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 17. mars 2023 19:44
Brynjar Ingi Erluson
Nunez dregur sig úr úrúgvæska hópnum vegna meiðsla
Darwin Nunez
Darwin Nunez
Mynd: Getty Images
Darwin Nunez, framherji Liverpool, verður ekki með Úrúgvæ í landsleikjunum í lok mánaðarins vegna meiðsla en þetta staðfesti úrúgvæska sambandið í dag.

Nunez hefur glímt við smávægileg meiðsli í byrjun árs og misst af nokkrum leikjum hjá Liverpool.

Hann hefur verið með betri leikmönnum liðsins á tímabilinu, á annars leiktíð sem fer seint í sögubækurnar.

Liverpool er að berjast til að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili en það komu slæmar fréttir í dag. Nunez verður ekki með úrúgvæska landsliðinu gegn Japan og Suður-Kóreu síðar í þessum mánuði vegna meiðsla.

Hann hefur dregið sig úr hópnum en það gæti þýtt að hann verði ekki með Liverpool í þremur stærstu leikjum tímabilsins hjá enska liðinu eða ákvörðunin tekin að draga hann úr hóp til þess að hvíla hann fyrir þessa mikilvægu leiki.

Liverpool mætir Manchester City þann 1. apríl, Chelsea þremur dögum síðar og síðan Arsenal þann 9. apríl.
Athugasemdir
banner
banner