17.04.13 - 16:19
Arnar Daði Arnarsson
Berglind Björg í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Kvennalið Breiðabliks hefur fengið góðan liðstyrk fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni. Framherjinn, Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur skrifað undir samning við Breiðablik um að spila með liðinu í sumar.
Berglind Björg er 21 árs, framherji sem hefur undanfarin tvö ár leikið með ÍBV í Pepsi-deildinni. Hún þekkir vel til í herbúðum Breiðabliks þar sem hún hóf meistaraflokks feril sinn þar.
Í vetur hefur hún dvalið í Bandaríkjunum þar sem hún hefur stundað nám við háskóla í Florida og spilað í háskólaboltanum.
Hún á að baki sjö A-landsleiki og tæplega 40 unglingalandsleiki. Sumarið 2011 skoraði hún 16 mörk fyrir ÍBV í 20 leikjum. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá henni síðasta sumar og lék hún einungis helming leikja ÍBV.
Hún spilaði als leikið 63 fyrir Breiðablik og skoraði í þeim 30 mörk, sumrin 2007 - 2010.