Fotbolti.net
17.04.16 - 17:30
Alexander Freyr Tamimi

Frederik Schram í Roskilde (Staðfest)

Frederik Schram er genginn í raðir Roskilde.

Frederik Schram er genginn í raðir Roskilde.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenski U21-landsliðsmarkvörðurinn Frederik Schram er genginn til liðs við FC Roskilde í dönsku 1. deildinni.

Frederik lék síðast með FC Vestsjælland og þar áður með OB, en hann hafði verið á reynslu hjá hinum ýmsu félögum áður en hann gekk til Roskilde, sem er í 10. sæti deildarinnar. Samdi hann við félagið út tímabilið.

<i>„Eftir að hafa verið lengi án félags er gott að vera kominn að niðurstöðu og ég er mjög ánægður með að það sé hjá Roskilde,\"</i> sagði Frederik við bold.dk. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í dag og fékk á sig mark frá Kjartani Henry Finnbogasyni í 2-1 tapi gegn Horsens.
„Ég sé fyrir mér að fá spiltíma og það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir mig. Nú vil ég bara komast af stað og halda hreinu nokkrum sinnum og ekki síst hjálpa liðinu að vinna.\"

„Ég hef bara æft með liðinu tvisvar, en félagið vildi gjarna hafa mig með á móti Horsens á sunnudag, þannig við ákváðum að semja stutt til að byrja með. Vonandi gerum við lengri samning síðar meir.\"


Frederik viðurkennir að draumurinn sé að vera með í íslenska landsliðshópnum sem fer með á EM 2016 í Frakklandi í sumar.

„Það eru bara sjö leikir eftir á tímabilinu, þannig ég þarf að standa mig virkilega vel til að fara með á EM. En ég hef í öllu falli látið Íslendingana vita af skiptunum, bæði U21-þjálfarannog A-landsliðsþjálfarana. Ég veit ekki hve raunhæft það er, en ég vona að ég komist með,\" sagði Frederik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.