17.04.17 - 12:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Önnur mexíkósk landsliðskona í Val (Staðfest)

Valur styrkir sig fyrir sumarið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur styrkir sig fyrir sumarið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Vals heldur áfram að styrkja sig fyrir sumarið. Ariana Calderon, landsliðskona frá Mexíkó, er gengin til liðs við Hlíðarendaliðið og mun leika með þeim í sumar.
Hún var síðast á mála hjá Medkila í Noregi, en þar áður spilaði hún meðal annars hér á landi með ÍBV. Hún lék fimm leiki seinni hluta tímabilsins 2014 með Vestmannaeyingum.
Hún var síðast á mála hjá Medkila í Noregi, en þar áður spilaði hún meðal annars hér á landi með ÍBV. Hún lék fimm leiki seinni hluta tímabilsins 2014 með Vestmannaeyingum.
Calderon, sem er fædd árið 1990, er annar mexíkóski leikmaðurinn sem Valur fær, en áður hafði Anisa Guajardo samið við félagið. Þær eru samherjar í Mexíkóska landsliðinu.
Valur stefnir á baráttu um titilinn í Pepsi-deild kvenna, en liðið leikur gegn Þór/KA í fyrstu umferð fyrir norðan.
Valur stefnir á baráttu um titilinn í Pepsi-deild kvenna, en liðið leikur gegn Þór/KA í fyrstu umferð fyrir norðan.
