Fotbolti.net
17.04.17 - 16:05
Magnús Már Einarsson

Terry fer frá Chelsea í sumar (Staðfest)

Terry fer frá Chelsea í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

John Terry, fyrirliði Chelsea, fer frá félaginu þegar samningur hans rennur út í sumar. Chelsea staðfesti þetta í frétt á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.
Á síðasta tímabili var tilkynnt að Terry myndi fara frá Chelsea um sumarið en hann gerði síðan á endanum nýjan samning.

Afar ólíklegt er að slíkt gerist aftur en Terry hefur verið í aukahlutverki í liði Chelsea í vetur og félagið hefur nú staðfest að hann sé á förum.

Terry hefur skorað 66 mörk í 713 leikjum með Chelsea síðan hann spilaði sinn fyrsta leik árið 1998.

Hann hefur verið fyrirliði í 578 af þessum leikjum en það er met hjá félaginu.

„Ég ætla að ákveða framtíð mína í fótboltanum á næstunni en núna ætla ég að einbeita mér að því að hjálpa liðinu á þessu tímabili,\" sagði Terry.

„Eftir 22 ár þá er svo margt að segja og margir sem ég vil þakka hjá þessu frábæra fótboltafélagi.\"

„Allt frá þjálfurum, liðsfélögum og starfsfólki yfir til stuðningsmanna sem hafa sýnt mér svo mikinn stuðning í gegnum tíðina. Ég get ekki þakkað ykkur nægilega mikið.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.