Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 17. apríl 2021 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikir: Jafnt á Víkingsvelli - Grindavík og ÍA unnu
Úr leik Víkings og Vals.
Úr leik Víkings og Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótboltinn er kominn aftur af stað á Íslandi og lið eru í óðaönn að klára undirbúning sinn fyrir Íslandsmótið.

Valur og Víkingur Reykjavík gerðu 2-2 jafntefli í æfingaleik á Víkingsvelli.

ÍA lagði Selfoss að velli og í gær vann Grindavík 3-2 sigur á Þrótti Vogum á Álftanesi þar sem Aron Dagur Birnuson, markvörður Grindavíkur, varði víti á lokamínútunum.

Víkingur R. 2 - 2 Valur
Mörk Víkings: Logi Tómasson og Karl Friðleifur Gunnarsson.

Grindavík 3 - 2 Þróttur V.
1-0 Sigurður Bjartur Hallsson
1-1 Arnar Siggeirsson
2-1 Sigurður Bjartur Hallsson
3-1 Aron Jóhannsson
3-2 Dagur Guðjónsson

Selfoss 1 - 2 ÍA
1-0 Aron Einarsson
1-1 Gísli Laxdal Unnarsson
1-2 Þórður Þorsteinn Þórðarson

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner