Ísland mætir Englandi í undankeppni HM 2027 á Laugardalsvelli á morgun, laugardag og verður leikurinn sögulegur fyrir fyrirliðann Glódísi Perlu Viggósdóttur. Að öllu óbreyttu leikur hún sinn 146. A-landsleik og slær þar með landsleikjamet Íslands.
Glódís lék sinn fyrsta A-landsleik árið 2012 í vináttuleik gegn Skotlandi, sem Íslandi sigraði 1-0. Frá þeim tíma hefur Glódís verið lykilmaður í íslenska liðinu. Hún festi sig í sessi í byrjunarliðinu árið 2013 og hefur verið fastamaður í vörninni síðan.
Liðsfélagar hennar fara fögrum orðum um fyrirliðann og áhrif hennar innan hópsins.
„Hún er bara ótrúlegur leiðtogi. Hún nær einhvern vegin öllum á sitt band og leiðir með fordæmi, bæði innan og utan vallar,“ sagði Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
„Þetta er bara ótrúleg fyrirmynd og það er erfitt að koma í orð hversu mikið maður lítur upp til hennar.“
Hildur Antonsdóttir tekur í sama streng.
„Það er bara geggjað og bara algjör forréttindi að hafa hana í liðinu okkar. Getur ekki fundið betri fyrirliða held ég.“
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir segir einnig áhrif hennar skýr.
„Bara forréttindi, ég er ógeðslega ánægð að fá þann möguleika að spila með henni.“
„Það sem hún gefur liðinu er mjög sérstakt.“
Glódís er enn aðeins þrítug og gæti því átt mörg ár eftir í landsliðinu. Haldi hún sama takti næstu ár gæti hún náð 200 landsleikjum innan fárra ára.
Liðsfélagar hennar efast ekki um að hún eigi nóg eftir á toppnum.
Jú, jú, jú hún á nóg eftir. Hún er bara 95 módel sko!“ sagði Cecilía Rán.
„Ég vona það bara fyrir hönd Íslands sko.“ svaraði Hildur Antons.



