Glódís mun að öllu óbreyttu leika sinn 146. A-landsleik á morgun og mun þar með slá landsleikjamet Íslands.
Íslenska kvennalandsliðið á fyrir verðugu verkefni á Laugardalsvelli á morgun er liðið mætir ríkjandi Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM.
Ísland lagði Úkraínu 1-0 á þriðjudag í fyrri leik verkefnisins, á meðan England vann heimsmeistara Spánar á Wembley.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði liðsins, sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í hádeginu í dag.
Ísland lagði Úkraínu 1-0 á þriðjudag í fyrri leik verkefnisins, á meðan England vann heimsmeistara Spánar á Wembley.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði liðsins, sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í hádeginu í dag.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 England
Þær ensku hátt uppi
„Auðvitað vitum við að við erum að fara mæta einu besta liði í heimi. Þær eru að koma eftir að hafa unnið Spán. Mikið 'high' fyrir þær. Við erum búnar að skoða ýmsa möguleika sem við höfum í stöðunni og finna svæði sem við getum nýtt okkur. Við vitum að með góðri frammistöðu þá getum við unnið þessi stóru lið. Við förum með fulla trú inn í þennan leik og erum klárar í þetta,“ sagði Glódís.
Hvernig vinnum við England?
„Einfalda svarið er að varnarleikurinn þarf að vera í lagi. Við þurfum að þora að verjast fram á við. Fara í návígi og vera svolítið leiðinleg. Við þurfum að nýta okkur þá veikleika sem við höfum séð.
Svo veit maður ekki alveg. England að koma til Íslands. Mæta út á völl, búnar að spila á Wembley. Mæta inn í klefa, búnar að vera í klefunum á Wembley. Svona hlutir af andlegu eðli og maður vonar að þær verði einhvers staðar allt annars staðar,“ sagði Þorsteinn.
„Það voru allar með á æfingu í dag. Eins og staðan er núna þá veit ég ekki annað en að þær séu allar klárar,“ sagði landsliðsþjálfarinn aðspurður um stöðuna á hópnum.
Vonast eftir betri mætingu
Tæplega 1500 áhorfendur mættu á leikinn gegn Úkraínu á þriðjudag, sem verður að teljast dræm mæting miðað við mikilvægi leiksins. Þorsteinn sagði í viðtali eftir leik að mætingin hafi verið vonbrigði.
„Auðvitað vonast maður til þess að fleiri mæti. Ég held að það sé búið að selja töluvert fleiri miða en á þriðjudaginn.“
Fagnaði ekki
Þorsteinn var spurður út í mark Alexöndru Jóhannsdóttur á þriðjudag sem kom upp úr löngu innkasti og hvort að það hafi verið nákvæmlega af æfingasvæðinu. Því svaraði Þorsteinn játandi og var því næst spurður hvort að það hafi verið ástæðan fyrir því að hann fagnaði ekki markinu.
„Fagnaðiru ekki?“ Spurði Glódís hissa og Þorsteinn svaraði léttur á brún; „Ég man það ekki. Stundum hugsa ég hvað gerist næst eftir mörkin. Þarf ég að breyta einhverju eða er eitthvað að fara gerast. Þess vegna gleymi ég mér ekki alveg í gleðinni.“
„Hefði þetta verið 3-0 mark hefði ég fagnað eins og vitleysingur. Þá hefði ég vitað að við hefðum verið að fara vinna leikinn. Af því að þetta var bara 1-0 þá þarf maður að hugsa þetta lengra.“

