Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 16:00
Kári Snorrason
Þær ensku hrifnar af Glódísi - „Stolt af því að vera hluti af þessu afreki hennar“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir ríkjandi Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM á Laugardalsvelli síðdegis á morgun.

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir mun þá, að öllu óbreyttu, spila sinn 146. landsleik og þar með slær met Söru Björk Gunnarsdóttur og verður leikjahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi.

Lucy Bronze, lykilmaður enska landsliðsins, og Sarina Wiegman, þjálfari liðsins, eru báðar mjög svo hrifnar af Glódísi og hrósuðu henni í hástert á blaðamannafundi Englendinga fyrr í dag.

„Ég ber mikla virðingu fyrir afreki hennar og skil hversu erfitt það er að ná þessu og að spila svona marga leiki fyrir þjóð þina. Við erum mjög stolt af því að taka þátt í svona stóru afreki hjá eins frábærum leikmanni og Glódís er,“ sagði Lucy Bronze, leikmaður Chelsea.

Wiegman tók undir orð Bronze; „Þetta verður frábær stund bæði fyrir íslenskan fótbolta og fyrir Glódísi sjálfa. Það sem við þekkjum frá henni og líka það sem við höfum heyrt frá Georgiu Stanway, liðsfélagi hennar hjá Bayern, er að hún sé frábær leiðtogi.“
Slapp
banner