Fotbolti.net
17.05.14 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Fimm nýir í Augnablik (Staðfest)

Birgir Hrafn Birgisson.

Birgir Hrafn Birgisson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Augnablik hefur fengið fimm nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í 4. deildinni í sumar.

Um er að ræða þá Aron Steinþórsson, Birgir Hrafn Birgisson, Kjartan Guðjohnsen, Stefán Hirst Friðriksson og Rúrik Andra Þorfinnsson.
Rúrik Andri kemur frá Fylki en hann lék með liðinu í Pepsi-deildinni sumarið 2011 og 2012.

Birgir Hrafn er uppalinn hjá Breiðabliki en þessi 29 ára gamli miðjumaður á leiki að baki með Stjörnunni og Víkingi frá Ólafsvík.

Aron og Stefán Hirst koma báðir frá KV en þeir komu ekki við sögu hjá liðinu í 2. deildinni í fyrra.

Kjartan kemur frá Breiðabliki en hann er bróðir Eiðs Smára Guðjohnsen.

Augnablik hefur leik í 4. deildinni á miðvikudag en fær liðið Vængi Júpíters í heimsókn. Liðið mætir síðan Keflavík í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í þarnæstu viku en myndbandið hér að neðan var gert í tilefni af þeim leik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.