Fotbolti.net
17.05.14 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Hvíti Riddarinn fær fimm leikmenn (Staðfest)

Fá 53 ára fyrrum sóknarmann Southampton

Sigurbjartur Sigurjónsson og Þorgeir Leó Gunnarsson.

Sigurbjartur Sigurjónsson og Þorgeir Leó Gunnarsson.

Canon

Mynd: Hvíti Riddarinn

Hvíti Riddarinn fékk fjóra leikmenn frá bróðurfélagi sínu Aftureldingu áður en félagaskiptaglugginn lokaði. Þar að auki fékk liðið til sín fyrrum atvinnumann frá Englandi.
Miðjumaðurinn Steinar Ægisson og vinstri bakvörðurinn Þorgeir Leó Gunnarsson koma báðir frá Aftureldingu en þeir voru báðir í stóru hlutverki hjá liðinu í 2. deildinni á síðasta tímabili.

Steinar skoraði fimm mörk í 19 leikjum í 2. deildinni í fyrra en Þorgeir Leó skoraði eitt mark í tuttugu leikjum.

Þá hefur Hvíti Riddarinn fengið til sín markvörðinn Sigurbjart Sigurjónsson að láni út tímabilið. Sigurbjartur spilaði alla leiki Aftureldingar í A-deild lengjubikarsins í vetur auk þess sem hann hefur spilað fyrir liðið undanfarin ár að utanskildu síðasta tímabili.

Sigurbjartur er þar að auki þjálfari Hvíta Riddarans og verður því spilandi þjálfari með liðinu í sumar.

Auk þess hefur Styrmir Vilhjálmsson gengið í Hvíta Riddarans en hann lék með félaginu á láni síðasta tímabil.

Að lokum þá fékk Hvíti Riddarinn til sín enska framherjann Dave Puckett en hann er 53 ára gamall. Dave hefur leikið með liðum á borð við Southampton, Swansea og Stoke City á ferli sínum en undanfarin ár hefur hann haldið áfram að spila í ensku utandeildunum.

Dave Puckett á 94 leiki í efstu deild með Southampton og 14 mörk en hann er pabbi Bill Puckett leikmanns og annars þjálfara Hvíta Riddarans.
Steinar Ægisson.

Steinar Ægisson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.