Fotbolti.net
17.05.14 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Leiknir lánar Kristján Hermann í Njarðvík (Staðfest)

Kristján Hermann Þorkelsson.

Kristján Hermann Þorkelsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Sóknarmaðurinn Kristján Hermann Þorkelsson hefur verið lánaður frá Leikni Reykjavík í Njarðvík sem leikur í 1. deildinni. Kristján er tvítugur og hefur leikið með Leikni á undirbúningstímabilinu.
Síðustu ár hefur hann einnig leikið með varaliði Leiknis, KB í Breiðholti, og hefur hann skorað 11 mörk í 37 leikjum.

Leiknir leikur í 1. deildinni og hefur lánað fleiri unga leikmenn. Varnarmaðurinn Skúli Bragason, jafnaldri Kristjáns, er kominn í Einherja í Vopnafirði.

Þá hefur varnar- og miðjumaðurinn Friðjón Magnússon verið lánaður í KB í 4. deildinni en hann er á elsta ári í 2. flokki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.