Fotbolti.net
17.05.14 - 11:12
Jóhann Óli Eiðsson

Manchester United fær serbneskan markvörð (Staðfest)

Milinkovic-Savic mun þurfa að ýta De Gea úr liðinu

Milinkovic-Savic mun þurfa að ýta De Gea úr liðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Þrátt fyrir að Manchester United sé ennþá án þjálfara og tímabilinu ný lokið þá eru fyrstu kaup félagsins fyrir komandi tímabil gengin í gegn. Kaupin eru í formi serbnesks markvarðar að nafni Vanja Milinkovic-Savic en sá er 17 ára og kemur frá FK Vojvodina í heimalandinu.
Markvörðurinn ungi mun þó ekki ganga formlega í raðir Rauðu djöflanna strax þar eð hann mun verja næsta tímabili á láni hjá Vojvodina áður en hann kemur til Englands. Einnig er vert að nefna að það verður seint sagt um Milinkovic-Savic að hann sé lítill en hann er rúmir tveir metrar á hæð.

Það má síðan búast við því að næstu fréttir varðandi Man Utd fjalli um ráðningu Loius van Gaal til félagsins en liðið er án knattspyrnustjóra eftir brotthvarf David Moyes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.