17.05.14 - 20:02
Jóhann Ingi Hafþórsson
Tata Martino hættur sem stjóri Barcelona (Staðfest)

Tata Martino mun ekki stýra Barcelona oftar

Mynd: Getty Images

Stórar fréttir voru að berast frá Spáni en Tata Martino, stjóri Barcelona, hefur stigið til hliðar eftir að Barcelona mistókst að vinna spænsku deildina.
Hinn 51 árs Argentínumaður staðfesti þetta eftir leikinn. Barcelona og Martino ku hafa náð munnlegu samkomulagi um að hann myndi hætta eftir aðeins eitt tímabil hjá félaginu.
„Eftir samkomulag við félagið er ég ekki lengur þjálfari liðsins.\" Sagði Martino.\"
„Mér finnst það afar leiðinlegt að hafa ekki náð þeim markmiðum sem félagið setti. Ég var að vinna með frábærum leikmönnum og þakklæti mitt fer til þeirra. Þeir hafa gert mig stoltann.\"
Luis Enrique þykir hvað líklegastur að taka við en hann spilaði í fjöldamörg ár með liðinu og hætti nýverið með Celta Vigo.
Barcelona náði engan veginn að standa undir væntingum undir stjórn Martino.