17.05.16 - 22:01
Magnús Már Einarsson
Aron Heiðdal í Leikni R. (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir R. hefur fengið varnarmanninn Aron Rúnarsson Heiðdal í sínar raðir frá Stjörnunni.
Aron er fæddur árið 1995 en hann var í láni hjá norska félaginu Nest Sotra hluta af síðasta tímabili.
Aron er fæddur árið 1995 en hann var í láni hjá norska félaginu Nest Sotra hluta af síðasta tímabili.
Árið 2014 fór Aron til Keflavíkur á láni þar sem hann spilaði síðari hluta sumars og var meðal annars í byrjunarliðinu í bikarúrslitaleik gegn KR.
Þar spilaði hann undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar, þjálfara Leiknis.
Leiknir hefur byrjað vel í Inkasso-deildinni og er með sex stig en næsti leikur liðsins er gegn Selfyssingum á föstudag.
Þar spilaði hann undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar, þjálfara Leiknis.
Leiknir hefur byrjað vel í Inkasso-deildinni og er með sex stig en næsti leikur liðsins er gegn Selfyssingum á föstudag.
