Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 17. maí 2021 23:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: Nýtt lið fer vel af stað
Berserkir töpuðu 0-3.
Berserkir töpuðu 0-3.
Mynd: Guðmundur Arnar Sigurðsson
Berserkir 0 - 3 RB
0-1 Harun Crnac ('22)
0-2 Jón Kristján Harðarson ('26)
0-3 Reynir Þór Valsson ('80)

RB, nýtt félag í 4. deild, fer vel af stað í sumar. Þeir heimsóttu Berserki í A-riðlinum.

Harun Crnac skoraði fyrsta mark RB í sumar og fjórum mínútum síðar skoraði Jón Kristján Harðarson. Staðan var 0-2 í Fossvoginum þegar flautað var til hálfleiks.

Þegar tíu mínútur voru til leiksloka innsiglaði Reynir Þór Valsson sigurinn fyrir RB, 0-3.

RB byrjar vel og spurning hvort þeir verða með í toppbaráttunni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner