Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 17. maí 2021 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu skondið mark KR - „Hrikalega vont hjá Hannesi!"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna er í gangi stórleikur KR og Vals í Vesturbæ en hægt er að nálgast beina textalýsingu frá leiknum með því að smella hérna.

KR tók forystuna í leiknum eftir aðeins níu mínútna leik með frekar skondnu marki.

„Kennie Chopart gerir hrikalega vel í að vinna boltann ofarlega og keyra inn á teiginn, sendir boltann svo fyrir á fjær þar sem Pálmi Rafn tekur klippuna í Guðjón Baldvins og inn!" skrifaði Baldvin Már Borgarsson í beinni textalýsingu.

Pálmi sparkaði boltanum fast í Guðjón, en sóknarmaðurinn var með réttan haus á réttum tíma.

Landsliðsmarkvörðurinn átti að gera betur. „Hannes var nánast með boltann í lúkunum en boltinn lekur inn, hrikalega vont hjá Hannesi!"

Hægt er að sjá markið með því að smella hérna.

Valsmenn eru búnir að snúa leiknum við og nálgast beina textalýsingu með því að smella hérna.
Athugasemdir
banner
banner