Fotbolti.net
17.05.26 - 17:47
Ívan Guðjón Baldursson

Gylfi Þór: Einn af erfiðari fyrri hálfleikjum sumarsins

Auglýsing
Gylfi Þór: Einn af erfiðari fyrri hálfleikjum sumarsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði glæsilegt mark í sigri Víkings R. á útivelli gegn ÍBV í Bestu deildinni í dag. Misheppnuð hreinsun upp völlinn frá Ara i Haraldsstovu Petersen markverði ÍBV endaði hjá Gylfa Þóri fyrir aftan miðlínuna og þakkaði landsliðsmaðurinn fyrir sig með að setja boltann í netið.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Víkingur R.
Gylfi var kátur að leikslokum eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegari í erfiðum leik. Íslandsmeistararnir eru með 19 stig eftir 7 umferðir á nýju tímabili.

„Þetta var erfiður leikur og sérstaklega fyrri hálfleikurinn, þetta er einn af erfiðari fyrri hálfleikjum sem ég hef spilað í sumar," sagði Gylfi við Tryggva Guðmundsson. Þeir voru báðir hissa á hornspyrnutaktík Eyjamanna í leiknum þar sem þeir virtust ekki nýta aðstæður sem einkenndust af miklum vindi.

„Það var erfitt að spila á móti vindi í fyrri hálfleik og þeir voru smá með yfirhöndina en við héldum rónni og treystum á sjálfa okkur til að vinna leikinn í síðari hálfleik. Sem betur fer þá skoruðum við fyrsta markið í leiknum, þetta hefði annars verið mikið vesen."

Víkingar fóru í tæplega 6 klukkustunda siglingu á leið sinni til Vestmannaeyja og fögnuðu þegar þeir fengu fregnir um að siglt yrði til Landeyjahafnar á bakaleiðinni.

Besta deildin: Gylfi skoraði fyrir aftan miðju í Eyjum
TENGT EFNI

Besta deildin: Gylfi skoraði fyrir aftan miðju í Eyjum

Gylfi Þór: Einn af erfiðari fyrri hálfleikjum sumarsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.