Fotbolti.net
17.06.19 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Maradona: Móðgun fyrir treyjuna og píkur mæðra ykkar

Maradona: Móðgun fyrir treyjuna og píkur mæðra ykkar
Canon

Mynd: Getty Images

Diego Armando Maradona var allt annað en sáttur eftir 0-2 tap Argentínu gegn Kólumbíu í fyrstu umferð riðlakeppni Copa America á dögunum.
Argentína hefur ekki unnið stórmót síðan 1993 og eru landsliðsmennirnir reglulega gagnrýndir fyrir að spila ekki jafn vel fyrir landsliðið og þeir gera með félagsliðum sínum.



„Þetta lætur mann halda að Tonga geti unnið okkur," sagði Maradona.



„Við byggðum okkur orðspor með blóði, svita og tárum. Hvað er eftir af því öllu? Hvað þýðir þessi treyja?



„Þið eruð móðgun fyrir treyjuna og píkur mæðra ykkar."




Maradona er sem stendur í Buenos Aires eftir að hafa hætt störfum hjá Dorados í Mexíkó að læknisráði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.