Fotbolti.net
17.06.20 - 23:20
Brynjar Ingi Erluson

Daniel Garcia Blanco aftur í Leikni F. (Staðfest)

Daniel Garcia Blanco í leik með Leikni F.

Daniel Garcia Blanco í leik með Leikni F.

Canon

Mynd: Leiknir F.

Knattspyrnudeild Leiknis F. tilkynnti gríðarlega mikilvægan liðsstyrk fyrir átökin í Lengjudeildinni en Daniel Garcia Blanco er kominn aftur til félagsins og mun spila með liðinu í sumar.
Spænski sóknarmaðurinn gekk til liðs við Leikni fyrir síðustu leiktíð og lék með liðinu í 2. deildinni en hann var einn besti leikmaður tímabilsins.

Hann skoraði 11 mörk í 19 leikjum og hálpaði Leiknisliðinu að komast upp í Lengjudeildina.

Hann hélt aftur til Spánar eftir tímabilið en er mættur aftur og mun spila með liðinu í sumar.

Leiknismenn mæta Fram í fyrstu umferð á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.