Fotbolti.net
17.06.20 - 14:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Umspilsleikur Íslands og Rúmeníu fer fram í október (Staðfest)

Marki fagnað.

Marki fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Umspilið um sæti á EM alls staðar 2020(1) fer fram í október. Þetta var ákveðið á fundi UEFA í dag.

Ísland mun þar mæta Rúmeníu í undanúrslitum á Laugardalsvelli og annað hvort Búlgaríu eða Ungverjalandi ytra ef sigur vinnst á Rúmenum.
Landsliðsgluggarnir tveir verða einhvern tímann á bilinu 8. október til 12. nóvember. Undanúrslitin í október og úrslitaviðureignin í nóvember.

Upphaflega átti umspilið að fara fram í mars en vegna heimsfaraldursins var þeim frestað. Ísland mætir Portúgal, Frakklandi og Þýskalandi takist liðinu að sigra umspilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.