Fotbolti.net
17.06.20 - 13:53
Elvar Geir Magnússon

Úrslitakeppni í Meistaradeildinni í Lissabon - Evrópudeildin í Þýskalandi (Staðfest)

Estadio da Luz í Lissabon.

Estadio da Luz í Lissabon.

Canon

Mynd: Getty Images

UEFA hefur staðfest að 8-liða úrslit, undanúrslit og úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fari fram í Lissabon í Portúgal.

Um verður að ræða eins leiks einvígi en úrslitakeppnin fer fram 12. - 23. ágúst en 16-liða úrslitin verða kláruð 7. - 8. ágúst. Möguleiki er á að leikir í 16-liða úrslitum verði leiknir á hlutlausum völlum ef ekki er hægt að leika í viðkomandi landi.

Fyrirkomulaginu var breytt vegna heimsfaraldursins.

Upprunalega átti úrslitaleikur Meistaradeildarinnar að fara fram í Istanbúl en nú er ljóst að heimavellir Benfica og Sporting Lissabon verða notaðir til að klára keppnina.

Þessir tveir leikvangar (sem voru notaðir á EM 2004), auðveldar samgöngur innan borgarinnar og nóg af hótelplássi eru ástæður þess að Lissabon var valin til að klára keppnina.
Meistaradeild kvenna verður einnig útsláttarkeppni, þar verður leikið í norðurhluta Spánar 21. - 30. ágúst.

Evrópudeildin klárast í Þýskalandi
Útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar verður með svipuðum hætti og í Meistaradeildinni. Leikið verður í fjórum þýskum borgum; Köln, Duisburg, Dussdeldorf og Gelsenkirchen.

Sú úrslitakeppni verður 10. - 21. ágúst og lýkur með úrslitaleik í Köln.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.