Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 17. júní 2021 22:57
Victor Pálsson
Copa America: Kólumbíu mistókst að skora
Mynd: Getty Images
Kólumbía 0 - 0 Venesúela

Kólumbíu mistókst að vinna sinn annan leik í riðlakeppni Copa America í kvöld er liðið mætti Venesúela.

Venesúela tapaði fyrsta leik sínum 3-0 gegn Brössum en Kólumbía vann Ekvador með einu marki gegn engu.

Kólumbía var miklu sterkari aðilinn í leik kvöldsins og átti 23 marktilraunir að marki Venesúela.

Vörn Venesúela hélt þó út 90 mínúturnar en átti aðeins tvær marktilraunir í öllum leiknum.

Markalaust jafntefli því niðurstaðan en undir lok leiks fékk Luis Diaz að líta breint rautt spjald hjá Kólumbíumönnum.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner