Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 12:56
Elvar Geir Magnússon
Bikar Baddi spáir í 8-liða úrslitin - Vítakeppni fyrir vestan
Þórsarar vinna Vestra í vítakeppni ef spá Bikar Badda rætist.
Þórsarar vinna Vestra í vítakeppni ef spá Bikar Badda rætist.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Bikar Baddi spáir í leikina.
Bikar Baddi spáir í leikina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8-liða úrslitin í Mjólkurbikarnum verða leikin í vikunni og er leikjadagskráin á þann veg að hægt verður að horfa á alla leikina í beinni á RÚV 2.

Tveir leikir verða á miðvikudag og hinir tveir á fimmtudag.

Allir leikirnir verða að sjálfsögðu í beinum textalýsingum hér á Fótbolta.net. Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net í bikarnum og hann spáir í leikina. Hann hefur verið ansi naskur hingað til.

Miðvikudagur 17:30: Vestri 1 - 1 Þór (Þór í vító)
Þó Ibrahima Balde sé í banni þá smitar hann orku í liðsfélaga sína í aðdraganda leiksins, þessi leikur verður engin flugeldasýning en Þórsarar komast yfir með marki frá Ragnari Óla, Vestramenn stíga þá á bensíngjöfina í sóknarleiknum og finna jöfnunarmark fyrir leikslok, framlengingin verður eins og að horfa á málningu þorna en Þórsarar koma á óvart og klára Vestramenn í vító.

Miðvikudagur 20:00: Stjarnan 3 - 1 Keflavík
Jölliball er búinn að koma taktinum sem hann vill í liðið sitt og þeir keyra yfir Keflvíkinga nokkuð þægilega, Alex Þór, Kjartan Már, Þorri Mar og Bjarki Hauks með stórleik fyrir Stjörnuna.

Fimmtudagur 17:30: ÍBV 2 - 3 Valur
Bikar-Láki er að gera magnaða hluti þarna í Eyjum og er farinn að sjá fyrir sér titil, því miður lenda Eyjamenn bara í Bjarna Mark hakkavélinni sem fær ekki rautt í þetta skiptið heldur skorar, leggur upp og bjargar á línu, þetta verður leikur umferðarinnar og mikil skemmtun fyrir alla áhorfendur, Sverrir Hjaltested setur einn rýting í gömlu félagana en Patrick Pedersen skorar í leiknum og fagnar með því að benda á TG9 í textalýsingarboxinu.

Fimmtudagur 20:00: Afturelding 2 - 2 Fram (Afturelding í framlenginu 4-2)
Slagurinn um Úlfarsfellið verður spennandi, Mosfellingar komast yfir en Vuk Oskar hefur verið sjóðandi og kemur Fram í 1-2, Benjamin Stokke jafnar leikinn seint í seinni hálfleik. Í framlengingu lenda Framarar í Hrannari Snæ sem er eins og vélmenni, Hrannar skorar seiglumark með hraða sínum og krafti og lokar svo leiknum með því að sækja víti sem Stokke klárar, Gísli Elvar, Biggi smiður, Svanni fasteignasali og allt þetta fríða föruneyti heldur áfram að syngja, tralla og telja seðla þarna í Mosfellsbænum.
Athugasemdir
banner
banner