Fotbolti.net
17.07.13 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson

Digne til PSG á 15 milljónir (Staðfest)

Digne til PSG á 15 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Lucas Digne er kominn til Paris Saint-Germain frá Lille á 15 milljónir evra.

Digne er 19 ára vinstri bakvörður og á 65 landsleiki að baki með yngri landsliðum Frakklands og var í U20 ára landsliðinu sem vann HM á dögunum.
Monaco reyndi að fá Digne til sín en hann vildi frekar fara til Frakklandsmeistaranna og berjast um byrjunarliðssæti þar.

,,Að spila fyrir Paris Saint-Germain, með þessum stórkostlegu leikmönnum, er draumur að rætast,\" sagði Digne við vefsíðu PSG:

,,Ég er mjög ánægður, þetta er ótrúlegt sumar. Fyrst vinn ég HM í Tyrklandi og svo skrifa ég undir hjá besta liði landsins.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.