Fotbolti.net
17.07.13 - 08:30
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Galatasaray kaupir Felipe Melo (Staðfest)

Felipe Melo.

Felipe Melo.

Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Galatasaray hefur tilkynnt um kaupin á miðjumanninum Felipe Melo frá Juventus.

Galatasaray greiðir 5 milljónir evra fyrir brasilíumanninn, en hann hefur undanfarin tvö ár leikið með félaginu sem lánsmaður.
Þessi 30 ára gamli Brasilíumaður er hinsvegar endanlega orðinn leikmaður Galatasaray og skrifaði hann undir þriggja ára samning í Tyrklandi.

Melo var til mála hjá Juventus í fjögur ár, en áður lék hann meðal annars með Fiorentina, Almeria og Racing Santander.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.