17.07.13 - 22:37
Magnús Már Einarsson
Kristján Páll í Leikni R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir R. hefur keypt kantmanninn Kristján Pál Jónsson aftur frá Fylki en þetta kemur fram á Fylkismenn.is.
Þar kemur fram að Fylkir hafi samþykkt tilboð frá Leikni í leikmanninn í dag.

,,Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Kristjáni Páli fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum góðs gengis,\" segir á Fylkismenn.is.
Kristján Páll kom til Fylkis frá Leikni fyrir tímabilið en náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliði í Árbænum.
Kristján Páll er þriðji leikmaðurinn sem fer frá Fylki í mánuðinum en áður höfðu Heiðar Geir Júlíusson og Tryggvi Guðmundsson náð samningum um starfslok við félagið.

Heimild: Fylkismenn.is