Fotbolti.net
17.07.13 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Malouda til Trabzonspor (Staðfest)

Malouda til Trabzonspor (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Florent Malouda er búinn að standast læknisskoðun hjá tyrkneska félaginu Trabzonspor og fer hann þangað frítt.

Malouda er 33 ára franskur kantmaður og rann samningur hans við Chelsea út í síðasta mánuði eftir sex ára veru hjá félaginu.
Malouda var partur af liði Chelsea sem vann Meistaradeildina 2012 og hefur hann unnið deildina og enska bikarinn sem leikmaður liðsins.

Trabzonspor endaði í níunda sæti tyrknesku deildarinnar á síðasta tímabili og því mikill liðsstyrkur að fá Malouda í liðið.

Malouda var með nokkur samningstilboð til að velja úr og hafnaði meðal annars West Bromwich Albion.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.