17.07.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Steve Harper til Hull (Staðfest)

Steve Harper.

Mynd: Getty Images

Steve Harper.

Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Stever Harper gekk í gær í raðir nýliða Hull City í ensku úrvalsdeildinni.
Harper kom á frjálsri sölu frá Newcastle, en samningur þessa miklu reynslubolta rann út eftir lok síðasta tímabils.
Harper kom á frjálsri sölu frá Newcastle, en samningur þessa miklu reynslubolta rann út eftir lok síðasta tímabils.
Harper er 38 ára gamall og skrifaði hann undir eins árs samning hjá Hull. Honum er ætlað að veita Allan McGregor samkeppni um markvarðastöðuna á komandi leiktíð.
Á 20 ára ferli sínum hjá Newcastle lék einungis 157 úrvalsdeildarleiki, en hann var að mestu notaður sem varamaður, auk þess sem hann lék með alls sex liðum sem lánsmaður.
Á 20 ára ferli sínum hjá Newcastle lék einungis 157 úrvalsdeildarleiki, en hann var að mestu notaður sem varamaður, auk þess sem hann lék með alls sex liðum sem lánsmaður.
