17.07.14 - 17:08
Elvar Geir Magnússon
Debuchy til Arsenal (Staðfest)

Mathieu Debuchy.

Mynd: Heimasíða Arsenal

Mathieu Debuchy.

Mynd: Heimasíða Arsenal
Mathieu Debuchy hefur gengið í raðir Arsenal frá Newcastle en kaupverð var ekki gefið upp. Þessi 28 ára hægri bakvörður lék með Frakklandi á HM.
Debuchy lék 46 leiki á 18 mánuðum með Newcastle en hann var hjá Lille níu fyrstu ár atvinnumannaferilsins.
Á heimasíðu Arsenal er vitnaði í Arsene Wenger sem er í skýjunum með að hafa klófest Debuchy.
„Hann hefur sýnt að hann hefur gæði til að keppa í efsta styrkleikaflokki. Hann er topp varnarmaður sem hefur góða reynslu úr ensku úrvalsdeildinni. Ég er viss um að hann smellpassi í okkar lið,\" segir Wenger.
Debuchy sjálfur segist vera spenntur fyrir því að spila í Meistaradeildinni og er ákveðinn í að hjálpa Arsenal í að berjast um titla.