Fotbolti.net
17.07.14 - 16:46
Elvar Geir Magnússon

Grétar Hjartarson tekur skóna fram með Reyni (Staðfest)

Grétar Hjartarson

Grétar Hjartarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Sóknarmaðurinn Grétar Ólafur Hjartarson hefur ákveðið að taka skóna fram að nýju og mun hann leika með uppeldisfélagi sínu, Reyni Sandgerði, út tímabilið.

Reynismenn eru í neðsta sæti 2. deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti, en þeir eiga mjög mikilvæga fallbaráttuslagi framundan gegn Njarðvík og Völsungi framundan.
Grétar er 37 ára og lék á sínum tíma með Grindavík og KR í efstu deild.

Egill Atlason, þjálfari Reynis, hefur fengið til sín tvo leikmenn á láni frá Leikni í Breiðholti.

Það eru bakvörðurinn Hrannar Jónsson og sóknarmaðurinn Kristján Hermann Þorkelsson.

Hér að neðan má sjá stöðuna í deildinni:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.