Fotbolti.net
17.07.14 - 21:41
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Magnússon í HK (Staðfest)

Guðmundur Magnússon í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur fengið sóknarmannin Guðmund Magnússon á láni frá Fram út tímabilið en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.

Guðmundur er 23 ára gamall en hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá Fram árið 2007.

Guðmundur gekk til liðs við Víking Ólafsvík á miðju sumri 2011 og lék með liðinu í tvö og hálft ár áður en hann fór aftur til Fram í vetur.
Í sumar hefur Guðmundur komið við sögu í þremur leikjum í Pepsi-deildinni en samtals hefur hann skorað sjö mörk í 58 leikjum í efstu deild.

Guðmundur verður kominn með leikheimild þegar HK mætir KV í 1. deildinni annað kvöld.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.