17.07.14 - 15:50
Daníel Freyr Jónsson
Michu lánaður til Napoli (Staðfest)

Michu er kominn til Napoli.

Mynd: Twitter

Michu er kominn til Napoli.

Mynd: Twitter
Napoli og Swansea hafa gengið frá lánssamningi Spánverjans Michu og mun hann leika með ítalska félaginu í vetur.
Þetta staðfesti Aurelio De Laurentiis forseti Napoli við ítalska fjölmiðla nú seinnipartinn.
Viðræður hafa staðið yfir undanfarnar vikur, en legið hefur í loftinu að Michu myndi yfirgefa félagið í sumar.
Michu var mikið meiddur í vetur og spilaði einungis 17 deildarleiki með Swansea eftir að hafa slegið í gegn á sínu fyrsta tímabili með welska liðinu.