Fotbolti.net
17.07.14 - 19:30
Daníel Freyr Jónsson

Rio Ferdinand til QPR (Staðfest)

Rio Ferdinand í búningi QPR.

Rio Ferdinand í búningi QPR.

Canon

Mynd: QPR

Rio Ferdinand er formlega genginn í raðir QPR eftir að hafa átt í viðræðum við félagið undanfarnar vikur.
QPR staðfesti þessar fregnir nú í kvöld og skrifaði Ferdinand undir eins árs samning hjá félaginu.

Ferdinand, sem er 35 ára gamall, yfirgaf Manchester United í síðasta mánuði. Þar vann hann allt sem í boði er á 12 ára ferli.

Samningaviðræður hafa dregist þar sem forráðamenn QPR drógu í land með þær launagreiðslur sem félagið hafði boðið Ferdinand. Hann mun núna hinsvegar hafa samþykkt samninig sem færir honum 70.000 pund á viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.