17.07.14 - 18:00
Daníel Freyr Jónsson
Tello lánaður til Porto í tvö ár (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Vængmaðurinn Cristian Tello hefur gengið í raðir Porto frá Barcelona á tveggja ára lánssamningi.
Porto hefur einnig möguleika á að kaupa Tello á meðan lánssamningurinn er í gildi.
Porto hefur einnig möguleika á að kaupa Tello á meðan lánssamningurinn er í gildi.
Tello er 22 ára gamall og hefur verið aftarlega í goggunarröðinni á Nývangi. Hann ákvað því að söðla um eftir að hafa komið við sögu í 22 leikjum Barcelona á síðustu leiktíð.
Í heildina hefur hann leikið 86 leiki með aðalliði Barcelona og skorað 20 mörk. Þá á hann að baki einn leik með spænska landsliðinu.
Í heildina hefur hann leikið 86 leiki með aðalliði Barcelona og skorað 20 mörk. Þá á hann að baki einn leik með spænska landsliðinu.
