17.07.16 - 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Efnilegur leikmaður Chelsea lánaður til Huddersfield (Staðfest)

Casey Palmer.

Mynd: Getty Images

Casey Palmer.

Mynd: Getty Images
Kasey Palmer, ungur leikmaður Chelsea hefur verið lánaður til Huddersfield sem leikur í ensku Championship-deildinni, út leiktíðina.
Palmer er 19 ára, en hann hefur ekki enn leikið fyrir aðallið Chelsea. Hann hefur þó tvisvar verið valinn í hóp.
Hann leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður og hefur leikið fyrir U21 árs lið Englendinga við góðan orðstír
„Ég trúi því að við getum hjálpað Kasey að taka næsta skrefið á ferli sínum og því að við getum sent hann aftur til Chelsea sem betri leikmann,\" sagði David Wagner, þjálfari Huddersfield.
David Wagner tók við Huddersfield á síðasta tímabili, en þar áður var hann að vinna með Jurgen Klopp hjá Borussia Dortmund.

Heimild: BBC