17.07.20 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Leeds aftur í ensku úrvalsdeildina (Staðfest)
Huddersfield bjargaði sér frá falli

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Huddersfield 2 - 1 West Brom
1-0 Christopher Willock ('4)
1-1 Dara O'Shea ('42)
2-1 Emile Smith Rowe ('86)
1-0 Christopher Willock ('4)
1-1 Dara O'Shea ('42)
2-1 Emile Smith Rowe ('86)
Huddersfield er búið að bjarga sér frá falli úr Championship deildinni eftir frækinn 2-1 sigur á toppbaráttuliði West Bromwich Albion.
Tapið kemur sér afar illa fyrir West Brom sem getur tapað öðru sætinu til Brentford. Annað sæti deildarinnar veitir þátttökurétt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en þriðja sæti fer í umspil.
Christopher Willock kom Huddersfield yfir snemma leiks og jafnaði Dara O'Shea fyrir leikhlé.
Leikurinn var nokkuð jafn en West Brom virtist vera búið að ná tökum á leiknum í síðari hálfleik. Gestirnir komu knettinum þó ekki í netið og var það Emile Smith Rowe, táningur að láni frá Arsenal, sem gerði sigurmark heimamanna á 86. mínútu gegn gangi leiksins.
Huddersfield er sex stigum og fimm sætum fyrir ofan fallsvæðið þegar tvær umferðir eru eftir. West Brom er aftur á móti í öðru sæti, einu stigi fyrir ofan Brentford sem á leik til góða gegn Stoke á morgun.
Þetta þýðir að Leeds United, sem trónir á toppi Championship, er með öruggt sæti í úrvalsdeildinni í haust. Leeds mætir aftur í deild þeirra bestu eftir sextán ára fjarveru.