17.07.20 - 22:12
Ívan Guðjón Baldursson
Ragnar Bragi hjá Fylki næstu þrjú árin (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Bragi Sveinsson er búinn að framlengja samning sinn við Fylki út keppnistímabilið 2023.
Ragnar Bragi, fæddur 1994, er fyrirliði Fylkis og á yfir 100 keppnisleiki að baki fyrir félagið.
Ragnar Bragi þótti mikið efni á sínum yngri árum og spilaði í heildina tólf leiki fyrir U16, U17 og U19 landslið Íslands.
Ragnar hefur alltaf leikið fyrir Fylki hér á landi nema sumarið 2017, þegar hann spilaði hálft tímabil með Víkingi R. eftir að Fylkir féll um deild.
Ragnar hóf ferilinn sem kantmaður en er orðinn að bakverði í dag.