Stjórn Skallagríms hefur ákveðið að Atli Steinar Ingason muni ekki spila meira með liðinu í sumar eftir að hafa orðið uppvís að kynþáttaníði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Skallagrími.
Atli Steinar kallaði leikmann Berserkja apakött og sagði honum að „fara aftur heim til Namibíu“ í 4. deildarleik Skallagríms og Berserkja fyrir viku síðan.
Aga- og úrskurðanefnd KSÍ úrskurðaði Atla Steinar í fimm leikja bann og sektaði knattspyrnudeild Skallagríms um 100.000 krónur.

Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Skallagríms
Stjórn knattspyrnudeildar Skallagríms tók fyrir úrskurð aganefndar KSÍ vegna máls Atla Steinars Ingasonar leikmanns liðsins, á fundi sínum fyrr í dag. Eftir að hafa farið yfir úrskurðinn, þar sem Atli er dæmdur í fimm leikja bann, er það niðurstaða stjórnar að Atli muni ekki spila meira með liði meistaraflokks Skallagríms á þessu keppnistímabili. Þessi ákvörðun er tekin í samráði við þjálfara liðsins.
Stjórn Knattspyrnudeildar Skallagríms harmar umrætt atvik og ítrekar að félagið mun ekki líða að leikmenn þess viðhafi framkomu sem feli í sér kynþáttafordóma, eða mismunun af nokkru tagi.
Með kærri kveðju
f.h. stjórnar
Gísli Einarsson
Athugasemdir