Fotbolti.net
17.08.13 - 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Sergio Romero til Monaco (Staðfest)

Sergio Romero til Monaco (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski markvörðurinn Sergio Romero er á leið frá Sampdoria til AS Monaco sem stefnir á toppbaráttu í frönsku deildinni á nýbyrjuðu tímabili.

Romero gekkst undir læknisskoðun fyrr í vikunni og birtist yfirlýsing um félagsskiptin á vefsíðu Sampdoria að laugardagsmorgni.
Mikil reiði ríkir meðal stuðningsmanna Sampdoria sem hafa þurft að horfa upp á félagið selja alla sína bestu leikmenn fyrir lítinn pening síðustu ár.

,,UC Sampdoria tilkynnir lánssamning með kaupréttsákvæði að tímabili loknu þar sem Sergio German Romero fer til AS Monaco,\" stendur í yfirlýsingunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.