Fotbolti.net
17.08.20 - 22:09
Brynjar Ingi Erluson

Gummi Tyrfings gerir tveggja ára samning við ÍA (Staðfest)

Guðmundur og Jóhannes Karl Guðjónsson við undirskrift

Guðmundur og Jóhannes Karl Guðjónsson við undirskrift

Canon

Mynd: Heimasíða ÍA

Knattspyrnudeild ÍA tilkynnti í kvöld nýjan leikmann en Guðmundur Tyrfingsson er kominn til félagsins frá Selfyssingum. Hann skrifar undir tveggja ára samning.
Guðmundur er fæddur árið 2003 og þykir afar mikið efni en hann hefur skorað 6 mörk í ellefu leikjum í sumar.

Hann hefur gert fimm mörk í bikarnum og þá eitt mark í deildinni en fyrr í kvöld greindi Hjörvar Hafliðason frá því að Guðmundur væri mættur til ÍA.

Nú hefur ÍA staðfest þessar fregnir og skrifar hann undir samning til næstu tveggja ára.

Guðmundur á 17 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Hann verður að öllum líkindum í hópnum hjá ÍA sem mætir Val í Mjólkurbikarnum á morgun.

„Það er mjög jákvætt að fá Guðmund til félagsins. Guðmundur er ungur og efnilegur leikmaður sem passar vel inn í okkar uppbyggingu. Hann er líka með mikinn metnað til að ná langt í fótbolta og það er það sem við leitum að í leikmönnum hér á Skaganum, svo hann á bara eftir að vaxa og dafna og gera frábæra hluti í framtíðinni. Hann á framtíðina fyrir sér," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, á heimasíðu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.