17.08.20 - 13:07
Magnús Már Einarsson
Keflavík fær landsliðskonu frá Perú (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Claudia Nicole Cagnina hefur gengið til liðs við Keflavík í Lengjudeild kvenna.
Hin 22 ára gamla Claudia er landsliðskona Perú en hún er einnig með ítalskt vegabréf.

Hún spilaði síðast með Tavagnacco í Serie A á Ítalíu.
Keflavík er með 20 stig á toppnum í Lengjudeildinni, stigi á undan Tindastóli og sex stigum á undan Gróttu í 3. sætinu.
Næsti leikur liðsins er toppslagur gegn Tindastóli á heimavelli næstkomandi sunnudag.