17.08.20 - 18:48
Brynjar Ingi Erluson
Setien farinn frá Barcelona - Nýr þjálfari kynntur á næstu dögum

Setien er farinn

Mynd: Getty Images

Setien er farinn

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Barcelona tilkynnti á heimasíðu sinni i kvöld að Quique Setien er farinn frá félaginu. Nýr þjálfari verður kynntur á næstu dögum en miklar breytingar verða gerðar á hópnum í kjölfarið.
Brottreksturinn kemur í kjölfar slæms gengis Börsunga á tímabilinu en liðið datt úr leik í Meistaradeild Evrópu á dögunum eftir 8-2 tap gegn Bayern München og þá mistókst liðinu að ná í bikar á leiktíðinni.
Josep Bartomeu, forseti Barcelona, staðfesti í viðtali við Tiempo De Juego í gær að Setien væri farinn frá félaginu og barst tilkynning frá Barcelona í kvöld sem staðfesti fregnirnar.
Nýr þjálfari verður kynntur á næstu dögum en einnig kemur fram í tilkynningunni að von er á miklum breytingum á liðinu.
Það verður áhugavert að sjá hvaða breytingar verða gerðar en spænskir fjölmiðlar fullyrða að Lionel Messi sé á förum frá félaginu og þá gætu fleiri öflugir leikmenn yfirgefið Barcelona.
Óvíst er hvort það verði hróflað við stjórnarstöðum innan félagsins en það hefur einnig komið fram að Eric Abidal, yfirmaður íþróttamála, gæti fengið sparkið.
Ronald Koeman, þjálfari hollenska landsliðsins, er talinn líklegastur til að taka við Börsungum en Mauricio Pochettino og Thierry Henry hafa einnig verið orðaðir við starfið.
Sjá einnig:
Setien rekinn frá Barcelona (Staðfest)