17.08.21 - 09:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Berglind Björg í Hammarby (Staðfest)

Berglind fagnar marki með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur skrifað undir samning við sænska félagið Hammarby.
Hún kemur til Hammarby frá Le Havre í Frakklandi þar sem hún hefur verið frá því á síðasta ári.
„Við höfum fylgst með Berglindi í meira en ár og höfum áður reynt að fá hana. Það er mjög gott að fá hana hingað. Hún hefur alltaf skorað mikið af mörkum og vonandi heldur hún því áfram með Hammarby," segir Johan Lager, yfirmaður knattspyrnumála hjá Hammarby.
Berglind, sem er 29 ára, hefur mest spilað með Breiðabliki hér heima. Hún hefur einnig spilað með ÍBV og Fylki. Þá hefur hún spilað með Verona og AC Milan á Ítalíu, PSV í Hollandi og nú síðast Le Havre.
Berglind á að baki 52 A-landsleiki og hefur hún skorað í þeim sjö mörk.
Hammarby situr í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.