Fotbolti.net
17.08.21 - 20:17
Ívan Guðjón Baldursson

Brentford fær markvörð frá Huesca (Staðfest) - Patrik þriðji

Fernandez var í Ólympíuhópi Spánverja í sumar.

Fernandez var í Ólympíuhópi Spánverja í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Brentford er búið að staðfesta komu markvarðarins Alvaro Fernandez á eins árs lánssamningi frá Huesca.
Brentford er með kauprétt á markverðinum næsta sumar en hann mun berjast við samlanda sinn David Raya um byrjunarliðssæti.

Raya hefur verið aðalmarkvörður hjá Brentford frá komu sinni fyrir tveimur árum en þar áður lék hann fyrir Blackburn.

Fernandez á leiki að baki fyrir Osasuna, Extremadura og varalið Mónakó auk þess að hafa fengið að spila sinn fyrsta A-landsleik á árinu. Fernandez á 22 leiki að baki fyrir yngri landslið Spánar.

Patrik Sigurður Gunnarsson er þá orðinn þriðji markvörður Brentford.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.