17.08.21 - 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Sevilla fær Montiel - Rony Lopes til Grikklands (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: Getty Images

Mynd: EPA
Það er margt í gangi í herbúðum Sevilla þessa dagana. Félagið krækti í Ludwig Augustinsson frá Werder Bremen og er einnig búið að tryggja sér þjónustu Gonzalo Montiel frá River Plate.
Montiel er 24 ára hægri bakvörður sem getur einnig leikið í miðri vörninni og á hægri kanti.
West Ham var orðað við hann í vetur en tókst ekki að festa kaup á Montiel, sem kostaði Sevilla um 11 milljónir evra.
Sevilla greiddi mikið afsláttarverð fyrir Montiel sem þykir afar öflugur bakvörður og tókst að festa sig í sessi í byrjunarliði argentínska landsliðsins sem vann Copa America í sumar. Leikmaðurinn heimtaði að vera seldur til Sevilla, annars hefði hann kostað talsvert meira.
Þá var portúgalski kantmaðurinn Rony Lopes lánaður til Olympiakos í gríska boltanum með 12 milljón evru kaupmöguleika.
Hinn 25 ára gamli Lopes, sem á leiki að baki fyrir Manchester City, Lille, Mónakó og Nice, fann aldrei taktinn hjá Sevilla. Lopes þótti gífurlegt efni áður fyrr og var algjör lykilmaður í yngri landsliðum Portúgala en mistókst stökkið upp í meistaraflokk.
Þar að auki er Sevilla í viðræðum um kaup á Jesus Corona frá Porto, sem er hægri kantmaður og bakvörður.
Sevilla fór vel af stað á nýju tímabili með 3-0 sigri á tíu leikmönnum Rayo Vallecano í fyrstu umferð. Liðið endaði í fjórða sæti í fyrra og tekur því þátt í Meistaradeildinni í haust.